Tilkynningar

DÁSAMLEGUR MATUR SEM ALLIR GETA NOTIÐ Hin breska Alice Sherwood er...
Opnunartími skrifstofu
Gerast félagi
ao vidbragsaaetlun hnappur

Skráning á póstlista

Minningarkort
Tímarit
Fræðslumyndbönd
Medic Alert
SÍBS

 

 

 ht logo big neg1

Fundargerð Aðalfund 2016

Aðalfundur Astma- og ofnæmisfélags Íslands

Síðumúla 6, 26. apríl 2016

Mætt: Björn Ólafur Hallgrímsson, Dagný Lárusdóttir, Fríða Rún Þórðardóttir, Guðrún Júlíusdóttir. Hanna Regína Guttormsdóttir, Hólmfríður Ólafsdóttir, Jóhanna Garðarsdóttir, Selma Árnadóttir, Sólveig Hildur Björnsdóttir, Telma Grímsdóttir, Tonie Gertin Sörensen, Þórunn María Bjarkadóttir.

Gestir: Ásta Karlsdóttir, Dóra Þorsteinsson, starfsfólk A3 í Fossvogi

Dagskrá aðalfundar

1. Formaður setur fundinn.

Formaður bauð fundarmenn og gesti aðalfundar AO 2016 velkomna. Því næst var gengið til dagskrár.

2. Kjör fundarstjóra og skipun fundarritara.

Formaður lagði til að Björn Ólafur Hallgrímsson yrði fundarstjóri og samþykkti fundurinn það sem og Björn sjálfur.

Fríða Rún Þórðardóttir var kjörin fundarritari.

Fundarstjóri þakkaði traustið og gekk til dagskrár. Hann úrskurðaði aðalfundinn löglegan þar sem löglega hafi verið til hans boðað.

3. Fundargerð

Fundargerð síðasta aðalfundar sem og fundargerð viðbótar aðalfundar frá 29. apríl 2015, var lesin upp og samþykkt einróma. Fundarstjóri tók reyndar fram að líklega hefði upplestur þessi verið óþarfur.

Hlé gert á hefðbundinni dagskrá:

Viðurkenningar

Formaður veitti Ástu Karlsdóttur og Dóru Þorsteinsson styrk að upphæð 200.000 kr sem deildist á milli þeirra tveggja og Höllu Jóhannesdóttur vegna námsferðar til Danmerkur.

4. Skýrsla stjórnar

Formaður flutti skýrslu stjórnar.

5. Skýrsla gjaldkera

Gjaldkeri fór yfir rekstrarreikning, efnahagsreikning, skuldir og eigið fé félagsins árið 2015.

Litlar umræður. Gjaldkeri tók fram að tap hefði verið á ofnæmisnámskeiðunum en það þarf að skoða þau mál nánar, eitthvað er enn útistandandi sem gæti skýrt þennana mismun á innkomu og kostnaði sem er aðallega launakostnaður og ferðakostnaður.

6. Skýrslur nefnda og sjóða

Formaður flutti stutta skýrslu vegna styrktarsjóðsins.

7. Umræður um skýrslur. Ársreikningar bornir upp.

Sjá hér að ofan umræðu um ársreikninga.

Engar ábendingar eða fyrirspurnir voru um skýrslur félagsins og styrktarsjóðsins nema að fundarmenn voru almennt ánægðir með starfsemi félagasins undanfarið ár og þá sérstaklega ofnæmisnámskeiðin, jákvæða afkomu blaðsins þó svo að aðeins hafi náðst að gefa út eitt blað á árinu 2015 sem og jólaballið sem tókst vel en það var haldið í annað sinn í byrjun janúar 2016. Ánægja er með störf Tonie á skrifstofu AO eins og endra nær

8. Ákvörðun félagsgjalda sbr. 6. gr.

Formaður lagði fram tillögu um að félagsgjaldi yrði haldið óbreyttu. Umræður um lélega innheimtu á félagsgjöldum átti sér stað, sem var þarft að taka. Leiddu umræðurnar til þess að ákveðið var að hækka gjaldið í 3.000 kr fyrir fullorðna og 1.500 kr fyrir börn. 6 voru með en 2 á móti. Innheimtan verður eins og árið 2014, greiðsluseðlar sendir í heimabanka. Gíróseðlar sendir heim til fólks voru ekki að skila tilætluðum árangri.

9. Lagabreytingar

Engar lagabreytingar lágu fyrir.

10. Formannskjör

Fundarstjóri stakk upp á sitjandi formanni, Fríðu Rún Þórðardóttur, sem áframhaldandi formann AO. Fundurinn tók undir og samþykkti tillöguna samhljóða með þökkum og lófaklappi. Fríða Rún þakkaði traustið og lofið.

11. Kjör tveggja meðstjórnenda.

Allir stjórnarmenn gáfu kost á sér áfram og engin ný framboð voru til stjórnar. Sólveig Hildur Björnsdóttir og Jóhanna Garðarsdóttir kosnar áfram í stjórn AO en þær eiga eitt ár eftir af sínu tveggja ára tímabili. Aðrir stjórnarmenn auk formanns eru: Hólmfríður Ólafsdóttir og Selma Árnadóttir sem eru á sínu öðru ári í stjórnarsetu.

12. Kjör þriggja varamanna

Þórunn María, Björn Ólafur og Dagný Erna voru réttkjörin áfram til starfa í stjórn AO sem varamenn.

13. Kjör tveggja skoðunarmanna og eins til vara.

Núverandi skoðunarmenn eru Stefanía Sigurðardóttir og Hanna Regína, Ari Axelsson til vara. Þau voru kjörin áfram til þeirra starfa.

14. Stjórnarkjör Styrktarsjóðs.

Samkvæmt lögum er formaður AO sjálfkjörinn í formannssæti Styrktarsjóðs, það embætti helst því óbreytt. Stjórnina skipa nú auk formanns AO, Dagný Erna gjaldkeri, Hanna Regína ritari, María Ingibjörg og Telma Grímsdóttir meðstjórnendur Varamenn er Björn Ólafur, Björn Árdal og Tonie. Stjórn Styrktarsjóðsins var endurkjörin samhljóða.

15. Aðrar kosningar

Ekki var þörf á öðrum kosningum.

16. Önnur mál.

Fundarstjóri minnti á framlagða tillögu stjórnar frá árinu 2015 um stofnun nýs styrktarsjóðs og að rætt hafi verið að leggja til hans stofnfé allt að 30 milljónum króna. Ganga þarf í þetta mál á næsta starfstímabili.

Formaður þakkaði fundarstjóra, Birni Ólafi, góða fundarstjórn og Björn Ólafur þakkaði fyrri stjórn góð störf og óskaði nýrri stjórn velfarnaðar í störfum sínum.

Formaður þakkaði fundarmönnum fyrir góðan fund.

Fundi slitið 18.45

Fundargerð ritaði Fríða Rún Þórðardóttir

Póstlisti AO

Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO