Tilkynningar
Gerðubergi þriðjudaginn 27. nóv. kl. 15:30
Á liðnum árum hafa æ fleiri foreldrar skólabarna haft samband við félagið vegna vandamála barna sem þjást af astma og ofnæmi. Ástandið er satt best að segja ekki viðunandi. Það er mat sérfræðinga að í það minnsta 3.000 börn og unglingar þjáist af astma og ofnæmi. Líf sumra þessara barna er alls ekki viðunandi. Með réttum aðferðum má bæta lífskjör þeirra talsvert. Til þess að greina þetta vandamál nánar boðar astma- og ofnæmisfélagið til fundar í Gerðubergi þriðjudaginn 27. nóv. kl. 15:30. Áætluð fundarlok eru kl. 17:00. Á fundinum munu læknarnir Ari Axelsson og Michael Clausen fjalla um astma og ofnæmi skólabarna og svara spurningum. Tilgangur fundarins er að hefja umræðu um vandamál astma- og ofnæmisveikra barna og þróa aðgerðir til að bæta lífsgæði þeirra í menntakerfinu. Með fyrirfram þökk,
|
Póstlisti AO
Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO