Tilkynningar

DÁSAMLEGUR MATUR SEM ALLIR GETA NOTIÐ Hin breska Alice Sherwood er...
Opnunartími skrifstofu
Gerast félagi
ao vidbragsaaetlun hnappur

Skráning á póstlista

Minningarkort
Tímarit
Fræðslumyndbönd
Medic Alert
SÍBS

 

 

 ht logo big neg1
06. Júl 2015

Stjórn Astma- og ofnæmisfélags Íslands óskar félagsmönnum gleðilegs sumars

Margir telja að félagsskapur eins og Astma- og ofnæmisfélag Íslands hafi aukið vægi og njóti meiri vinsælda en áður. Mannauður okkar eykst og einstaklingar hafa samband með fyrirspurnir, ábendingar og einnig til að bjóða fram krafta sína til að bæta hag annarra. Einnig hafa einstaklingar samband til að fá stuðning í hagsmunabaráttu vegna astma og ofnæmis en almennt er tilfinningin sú að astmi og ofnæmi sé að aukast og taka fulltrúar félaganna á hinum Norðurlöndunum í sama streng. Hvort sem okkur líkar betur eða verr þá skipta sjúklingasamtök meira máli þegar innviðir heilbrigðiskerfisins eru ekki nægjanlega sterkir, ekki að við ætlum að setja okkur í spor meðferðaraðila heldur erum við stuðningur og styrkur og þar skiptum við sannarlega máli.

 

straetomynd1Stjórn AO lætur ekki sitt eftir liggja í skoðanaskiptum um meinta ætlun Strætó bs að bjóða farþegum sínum að ferðast með gæludýr sín með sér. Rétt er að taka fram að andstaða stjórnarinnar snýr ekki að blindrahundum, það dettur okkur ekki í hug, enda væri slíkt brot á mannréttindum blindra og sjónskertra. Stjórn AO, og þeir sem stríða við astma og ofnæmi vekja hins vegar athygli á því að fjöldi fólks, þar með talin börn, eru með ofnæmi fyrir dýrum og því væri gengið á mannréttindi og öryggi þeirra með því að leyfa gæludýr í almenningsvögnum. Einnig má líta á þætti eins og hræðslu fólks við hunda og sá óþrifnaður sem getur hlotist á dæmigerðum íslenskum slyddu dögum.

Ofnæmisvaldar í farþegaflugi, þar sem hnetur eru nærtækasta dæmið, hafa verið efni bréfaskrifta af hálfu félagsins þar sem vekja hefur þurft athygli á því að bættar verklagsreglur flugfélaga séu nauðsynlegar til varnar því að dauðsfall hljótist af.

 

Það er margt sem stjórn AO hefur á prjónunum. Félagið hefur eflst í sínu norræna samstarfi og mun á haustdögum vera þátttakandi í samnorrænni viku þar sem vakin er athygli á því að fjöldi fólks þolir illa lykt og ilm af ýmiskonar ilm- og þrifaefnum svo og ilmvötnum og rakspírum, þetta vandamál er ekki á undanhaldi. Einnig er í gangi annað öflugt samnorrænt verkefni er snýr að sérstökum merkingum á vörum sem innihalda ekki ofnæmisvaldandi efni. Þar er hinn gríðarstóri norræni markaður undir. Námskeið um eldun ofnæmisfæðis er á döfinni á haustmánuðum og fleiri fræðslubæklingar munu líta dags ljós. Allt þetta til að bæta hag þeirra sem nú þegar stríða við astma og ofnæmi en einnig til að reyna að stemma stigu við þeirri þróun að það fjölgi enn frekar í hópnum.

 sumarblom

Stjórn Astma- og ofnæmisfélags Íslands óskar félagsmönnum gleðilegs sumars.

 

Fríða Rún Þórðardóttir

Formaður AO


Póstlisti AO

Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO