Tilkynningar

DÁSAMLEGUR MATUR SEM ALLIR GETA NOTIÐ Hin breska Alice Sherwood er...
Opnunartími skrifstofu
Gerast félagi
ao vidbragsaaetlun hnappur

Skráning á póstlista

Minningarkort
Tímarit
Fræðslumyndbönd
Medic Alert
SÍBS

 

 

 ht logo big neg1
07. Mar 2015

Opið bréf til stjórnar Strætó bs

 Um áformað leyfi til að flytja gæludýr, þ.m.t. hunda, með í ferðum Strætó.


hundur-straeto

Undirritaður lögmaður, sem situr í stjórn Astma- og ofnæmisfélags Íslands, vill hér með koma eftirfarandi athugasemdum á framfæri við stjórn Strætó bs, - nú þegar það kemur fram í fjölmiðlum (Visir.is/GÁG) frá Stætó bs. að framtaki Andra við undirskriftasöfnun sé fagnað innan Strætó b.s.  Að áliti undirritaðs mætti fremur nefna þetta frumhlaup Andra og stjórnarinnar.  Vil ég hér gefa örstuttar skýringar á þeirri skoðun minni:

 



  1. Með Strætó ferðast fjölmargt fólk, sem hefur líffræðilegt ofnæmi fyrir hundum, köttum og fleiri gæludýMeð áformuðu leyfi til að flytja gæludýr í Strætó, er heilsufarshagsmunum þessa fólks stefnt í bráða hættu.  Sjálfsagt væri að gera þá undantekningu, að leyfa blindrahundum för með strætisvögnum í fylgd eiganda síns, enda sé viðeigandi skilríkjum framvísað.
  2. Í greinum 33.a til 33 d í fjöleignarhúsalögum nr. 26/1994, sbr.1 gr. laga40/2011, felast almennar reglur um hundahald í fjöleignarhúsum, sem stjórn Strætó bs. væri hollt að kynna sér til að draga af þeim nothæfan lærdóm fyrir þá hættulegu nánd, sem verður í strætisvögnum, ef til leyfis kemur.
  3. Fram hefur komið nýlega í fréttum, að í Reykjavík séu nú  taldir vera u.þ.b. 10.000Hins vegar hafa aðeins um  5.000 hundar  verið löglega skráðir.  Þetta þýðir að hinn hópurinn, þ.e.  u.þ.b.  5.000 hundar,  eru óskráðir og ólöglegir.  Í því felst, að eigendur þeirra hafa ekki sótt um eða fengið leyfi til hundahalds.  Þeir hundar eru þá ekki merktir (örmerktir),  þeir eru ekki undir eftirliti um sjúkdóma, þeir eru ekki hreinsaðir (sullaveiki), ekki bólusettir og einhverjir þeirra eru af mjög hættulegum tegundum, sem ekki er unnt að fá leyfi  fyrir hér á landi og síðast en ekki síst hafa eigendur þessara ca 5.000 hunda  ekki keypt eða fengið keypta lögbundna ábyrgðartryggingu fyrir tjóni, sem hundar þeirra kunna að valda á fólki eða dýrum.  Hyggst stjórn Strætó bs. flytja ótryggða, óhreinsaða, óbólusetta og jafnvel stórhættulega hunda innan um fólk í strætisvögnum?   Verður það e.t. v. lagt á herðar vagnstjóra að kanna skírteini  fyrir hundum áður en þeim er hleypt inn í vagnana?

 

Það er skoðun undirritaðs, að stjórn Strætó bs. þurfi að ígrunda öll þessi atriði og eflaust fleiri mun betur áður endanleg ákvörðun verður tekin.

 

Reykjavík, 4. mars 2015.

 

Virðingarfyllst,

 

Björn Ólafur Hallgrímsson, hrl.

Póstlisti AO

Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO