Tilkynningar
Lyfjakostnaður sjúklinga lækkar um áramót
Hlutur sjúkratryggðra í lyfjakostnaði lækkar 1. janúar 2015 samkvæmt reglugerð sem heilbrigðisráðherra hefur gefið út. Þak á árlegum hámarkskostnaði lyfjanotenda lækkar um 10%; fer hjá almennum notendum úr 69.416 kr. í 62.000 kr. og hjá börnum og lífeyrisþegum og ungmennum yngri en 22 ára úr 46.277 kr. í 41.000 kr. Jafnframt því sem hámarksþök lyfjakostnaðar á tólf mánaða tímabili lækka um 10% lækka að sama skapi fjárhæðir afsláttarþrepa í lyfjagreiðslukerfinu.Lyfjagreiðslukerfið miðast við að notendur borgi lyf sín að fullu þar til ákveðinni fjárhæð er náð, en eftir það greiða sjúkratryggingar 85% af verði lyfjanna á móti 15% hlutdeild sjúklings. Full greiðsluþátttaka almenns lyfjanotanda miðast nú við 24.075 kr. en lækkar niður í 22.000 kr. og hjá börnum og lífeyrisþegum fer þessi fjárhæð úr 16.050 kr. í 14.500 kr. Ávinningur sjúklinga
Tekið af vef Velferðarráðuneytisins |
Póstlisti AO
Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO