Tilkynningar

DÁSAMLEGUR MATUR SEM ALLIR GETA NOTIÐ Hin breska Alice Sherwood er...
Opnunartími skrifstofu
Gerast félagi
ao vidbragsaaetlun hnappur

Skráning á póstlista

Minningarkort
Tímarit
Fræðslumyndbönd
Medic Alert
SÍBS

 

 

 ht logo big neg1
15. Des 2014

Jólaball 14. des 2014

jolaball 2014                      jolaball 2014- dansa     

Fyrsta jólaball Astma- og ofnæmisfélags Íslands og Seliak og glútenóþolssamtaka Íslands var haldið 14. desember í SÍBS.

Stórsveit SÍBS, skipuð fimm hljóðfæraleikurum og þremur söngkonum hélt uppi frábæru jólaballi og boðið var upp á ofnæmislausar veitingar. Jólasveinninn kom í heimsókn og dansaði í kringum jólatréð, lét taka af sér myndir með börnunum og gaf þeim að lokum gjafir eins og sönnum jólasveini sæmir.

AO og Seliak og glútenóþolssamtökin þakka fyrir góða mætingu en yfir 20 börn mættu ásamt foreldrum eða öðrum forráðamönnum. Einnig fær SÍBS hljómsveitin miklar þakkir fyrir frábært jólaball og Bauhaus þökkum við fyrir fallegt og veglegt jólatré. 

Póstlisti AO

Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO