Tilkynningar

DÁSAMLEGUR MATUR SEM ALLIR GETA NOTIÐ Hin breska Alice Sherwood er...
Opnunartími skrifstofu
Gerast félagi
ao vidbragsaaetlun hnappur

Skráning á póstlista

Minningarkort
Tímarit
Fræðslumyndbönd
Medic Alert
SÍBS

 

 

 ht logo big neg1
07. Jún 2021

Fundargerð Aðalfund 2021

Aðalfundur Astma- og ofnæmisfélags Íslands vegna 2020

Síðumúla 6, 1. júní 2021, kl. 17:15.

Mætt: Björn Ólafur Hallgrímsson, Björn Rúnar Lúðvíksson, Fríða Rún Þórðardóttir, Hanna Regína Guttormsdóttir, Jóhanna Eyrún Torfadóttir, Selma Árnadóttir, Sólveig Skaftadóttir, Tonie Gertin Sörensen.

Forföll boðuðu: Guðrún Ósk Guðjónsdóttir og Sif Hauksdóttir.

Eftirfarandi sóttu fundinn í gegnum fjarfundarbúnað: María Stefánsdóttir.

Dagskrá aðalfundar

1. Formaður setur fundinn.

Formaður bauð fundarmenn velkomna á aðalfund AO vegna 2020. Því næst var gengið til dagskrár.

2. Kjör fundarstjóra og skipun fundarritara.

Formaður lagði til að Björn Ólafur Hallgrímsson yrði fundarstjóri og samþykkti fundurinn og Björn Ólafur það samhljóða.

Björn Ólafur stakk upp á sitjandi formanni, Fríðu Rún Þórðardóttur sem fundarritari og var það samþykkt samhljóða.

Fundarstjóri þakkaði traustið og gekk til dagskrár. Hann úrskurðaði aðalfundinn löglegan þar sem löglega hafi verið til hans boðað. Hann var auglýstur þann 25. maí á heimasíðu AO og facebook síðu auk þess sem allir félagar fengu boð um fundinn með tölvupósti.

3. Fundargerð

Farið var yfir fundargerð síðasta aðalfundar sem var samþykkt samhljóða. Fundargerðir aðalfunda eru nú birtar á heimasíðu AO (www.ao.is / um félagið).

4. Skýrsla stjórnar

Formaður flutti skýrslu stjórnar og stiklaði á stóru um verkefni liðins árs en skýrslan (3 bls.) hafði verið lögð fram fyrir fundinn.

5. Skýrsla gjaldkera

Varaformaður fór yfir rekstrarreikning, efnahagsreikning, skuldir og eigið fé félagsins vegna ársins 2020. Á árinu 2020 gekk áfram vel að afla styrkja sem er grundvöllur fyrir því að ýmiss verkefni félagsins komist til framkvæmda og hlutust styrkir frá ÖBÍ, Lýðheilsusjóði og Heilbrigðisráðuneytinu. Reykjavíkur Maraþoni var aflýst og því hlutust engir styrkir þar.

6. Skýrslur nefnda og sjóða

Skýrsla um starfsemi Styrktarsjóðsins var flutt af formanni.

7. Umræður um skýrslur. Ársreikningar bornir upp.

Sjá hér að ofan umræðu um ársreikninga. Ársreikningurinn var borinn upp og samþykktur samhljóða. Skýrsla stjórnar AO var samþykkt samhljóða.

 

 

8. Ákvörðun félagsgjalda sbr. 6. gr.

Formaður lagði fram tillögu um að félagsgjaldinu yrði haldið óbreyttu.

9. Lagabreytingar

Engar lagabreytingar lágu fyrir.

10. Formannskjör

Fundurinn stakk upp á sitjandi formanni, Fríðu Rún Þórðardóttur, sem áframhaldandi formann AO. Fundurinn tók undir og samþykkti tillöguna samhljóða. Fríða Rún þakkaði traustið.

11. Kjör tveggja meðstjórnenda.

Björn Rúnar Lúðvíksson var kjörinn sem meðstjórnandi til tveggja ára. Guðrún Björg Birgisdóttir hættir í stjórn AO í stað hennar er Sólveig Skaftadóttir kjörin til tveggja ára.

Fyrir sitja í stjórninni þær Sif Hauksdóttir og Selma Árnadóttir sem sitja sitt annað tímabil í stjórninni.

12. Kjör þriggja varamanna

Auður Marteinsdóttir, Guðrún Ósk Guðjónsdóttir og Jóhanna Eyrún Torfadóttir voru kjörnar varamenn til eins árs.

13. Kjör tveggja skoðunarmanna og eins til vara.

Skoðunarmenn eru Hanna Regína Guttormsdóttir og Sólveig Hildur Björnsdóttir. Ari Víðir Axelsson er áfram varamaður.

14. Stjórnarkjör Styrktarsjóðs (kt: 650202-3680)

Samkvæmt lögum Styrktarsjóðsins er formaður AO sjálfkjörinn í formannssæti sjóðsins, það embætti helst því óbreytt. Stjórnina skipa nú auk formanns AO, Dagný Erna Lárusdóttir, Sólrún Melkorka Maggadóttir (lækni), Sólveig Skaftadóttir og Thelma Grímsdóttir.

Varamenn eru Björn Árdal (læknir), Hanna Regína Guttormsdóttir og Tonie Gertin Sörensen.

15. Aðrar kosningar

Ekki var þörf á öðrum kosningum.

16. Önnur mál.

Björn Rúnar Lúðvíksson ræddi um fræðslumálin og á hvaða formi hún ætti að vera. Stjórn ætti að gera úttekt á því hvernig best sé að miðla fræðslu í nútíma samfélagi til að mynda í gegnum heimasíðuna, öpp, vídeó. Skipa ritnefnd um þessi mál og taka læknana með í þeirri vinnu.

Tonie, ræddi um að astma og ofnæmissjúkir væru ekki á forgangslista varðandi bólusetningar og væri skrifstofan að svara fyrirspurnum vegna þessa.

 

Formaður þakkaði fundarstjóra, Birni Ólafi, fyrir fundarstjórnina. Formaður þakkaði fundarmönnum fyrir mætinguna og málefnalegan fund.

Formaður sleit fundi kl. 19:00.

Fundargerð ritaði Fríða Rún Þórðardóttir

Póstlisti AO

Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO