Tilkynningar
Loftmengun um áramótKæru félagar í Astma- og ofnæmisfélagi Íslands
Við bendum á að hægt að er fylgjast með loftgæðum á öllum mælistöðvum á landinu á slóðinni www.loftgæði.is. Ef einhver mælistöð er gul, appelsínugul eða rauð að lit má gera ráð fyrir að viðkvæmir einstaklingar og þeir sem þjást af öndunarfærasjúkdómum finni fyrir einkennum sem rekja megi til loftmengunar. Nýárskveðjur Starfsfólk Umhverfisstofnunar
Frjóofnæmis bæklingurGefin hefur verið út bæklingur um Frjóofnæmi Höfunda eru Sigurveig Þ. Sigurðardóttir og Björn Árdal sérfræðingar í barnalækningum, ofnæmis- og ónæmissjúkdómum barna. Bæklingnum verður dreift á heilsugæslustöðvar auk þess sem hægt verður að nálgast hann á skrifstofu Astma- og ofnæmisfélags Íslands í Síðumúla 6
Heilsugæslan og viðþjónustuleiðbeiningarHeilsugæslan er í þróun og er ætlað að vera fyrsti viðkomustaður fólks í heilbrigðiskerfinu. Aldraðir og örorkulífeyrisþegar, börn undir 18 ára aldri, börn með umönnunarkort og þeir sem koma vegna mæðraverndar greiða ekki komugjöld á heilsugæsluna.
|
Póstlisti AO
Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO