Tilkynningar
Samning við World ClassSÍBS hefur undirritað samning við World Class um kaup félagsmanna SÍBS á aðgangskortum hjá World Class. Félagsmönnum SÍBS býðst að kaupa heilsuræktarkort í World Class gegn staðfestingu á félagsaðild. Verð árskorta og 3 mánaðakorta er með 20% afslætti frá staðgreiðsluverði. Öryrkjar og ellilífeyrisþegar (67 ára og eldri) fá 30%. Samningur þessi gildir frá 24. júní 2010. Með góðri félagskveðju,f.h. Félagsráðs SÍBS Páll Haraldsson
marathon 2010Ágæti félagi . Félagsráð Síbs vill vekja athygli aðildarfélaganna á mögulegri áheitasöfnun í tengslum við Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka árið 2010 sjá www.marathon.is Astma- og ofnæmisfélagið (AO) er aðili að SÍBS. Það væri mjög ánægjulegt ef stór hópur hlaupara skráir sig sem SÍBS hlaupara eða AO hlaupara safnar þannig áheitum. Ef spurningar vakna varðandi ofangreint er hægt að hafa samband í síma Reykjavíkurmaraþons: 535-3700. Með góðri félagskveðju,f.h. Félagsráðs SÍBS Fríða Rún Þórðardóttir, Helgi Hróðmarsson og Páll Haraldsson
Rætt við Fríðu Rún Þórðardóttur hlaupara á ÍNNAstmalyf og áreynsluastmi,rætt við Fríðu Rún Þórðardóttur hlaupara á ÍNN Þann 17. maí næstkomandi hefjast á sjónvarpsstöðinni ÍNN röð sjónvarpsþátta þar sem fjallað er um lyf og tengd málefni. Lyfjafræðingar og Lyfjastofnun standa að gerð þáttanna sem byggðir eru upp á þann máta að tekið er fyrir ákveðið þema og unnið út frá því, eitt af þemunum er astmi. Ákveðið var að fá einstakling með astma í einn þáttinn, einstakling sem hefur upplifað að lyfin hafi skipt sköpum hvað varðar daglegt líf og tómstundir. Í þættinum sem sýndur verður 31. maí kl. 20 verður rætt við Fríðu Rún Þórðardóttur hlaupara, sem fékk áreynsluastma árið 2003 en hefur samt náð að stunda sínar æfingar af fullum krafti og keppir enn með landsliði Íslands í frjálsum íþróttum auk þess að keppa á Evrópu- og heimsmeistaramótum í sínum aldursflokki með góðum árangri. Fríða Rún þurfti töluverðan aðlögunatíma áður en lyfin fóru að virka eins og þau áttu að gera en þolinmæði og góð ráð lækna fóru loks að skila árangri og stöðugleika. Heimasíða ÍNN er http://www.inntv.is/ og þar má fylgjast með dagskránni |
Póstlisti AO
Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO