Tilkynningar
Sterkari út í lífið - Námskeið
Börn og ungmenni með fæðofnæmi þurfa oft á tíðum að takast á við krefjandi aðstæður í lífinu. Þau eru í flestum tilvikum sterkir einstaklingar með mikla þrautsegju enda búin að standa frammi fyrir ýmsum áskorunum í gegnum lífið. Samt sem áður ef ekki er rétt með farið þá geta þau þróað með sér kvíða, hræðslu og jafnvel einangrun sem getur verið skaðleg andlegri heilsu þeirra og velferð. Til að koma til móts við þetta þá höfum við hjá Astma- og ofnæmisfélgi Íslands fengið til liðs við okkur hana Berglindi Brynjólfsdóttu sérfræðing í klínískri barnasálfræði sem starfar á Barnaspítala Hringsins og er með mikla reynslu af því að vinna með börnum og ungmennum. Námskeiðið verður tvö skipti mánudagana 10. maí og 31. maí klukkan 17:00 – 18:30. Námskeiðið verður haldið í húsakynnum SÍBS að Síðumúla 6, 108 Reykjavík. Námskeiðið er ætluð börnum og ungmennum á aldrinum 10-15 ára og einn forráðamaður fylgir hverjum þátttakenda, áhugasamir sendi línu á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. með upplýsingar um nafn og kennitölu barns. Gott væri að það fylgdi með hvaða ofnæmi barnið hefur. Umsjónaraðilar: Berglind Brynjólfsdóttir Sálfræðingur Selma Árnadóttir situr í stjórn AO
Fæðuofnæmi og eldun ofnæmisfæðis 2021- fjarnámStarfsfólk í mötuneytum, matráðar, matreiðslumenn
Endurskoðuð handbók fyrir grunnskólamötuneyti komin út
Fæðuofnæmi og eldun ofnæmisfæðis - fjarnámStarfsfólk í mötuneytum, matráðar, matreiðslumenn Markmið námskeiðsins er að auka þekkingu á fæðuofnæmi og fæðuóþoli, á einkennum, algengi og afleiðingum fæðuofnæmis og fæðuóþols. Í framhaldi er farið yfir úrræði og leiðbeiningar í fæðismeðferð og matreiðslu.
Mjólk í Nudie Snacks Protein Balls – Salted Carmel BrownieHeilsa hefur ákveðið með tilliti til neytendaverndar og í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur að innkalla Nudie Snacks Protein Balls – Salted Carmel Brownie
Heilsa vill biðja viðskiptavini innilegrar velvirðingar á þessum leiðu mistökum.
Gleðileg jól 2020Kæri félagsmaður Astma- og ofnæmisfélags Íslands Við, stjórn og starfsmaður félagsins óskum ykkur gleðilegrar hátíðar og farsæls komandi árs og vonum að árið 2021 verði ykkur gott í alla staði. Nú er ótrúlegt ár senn á enda og við fögnum hátíð ljóss og friðar á fremur óhefðbundinn hátt en samt er markmiðið það sama og áður að eiga gæða stundir með okkar nánustu og njóta þessa einstaka tíma sem í hönd fer. Kærar kveðjur Astma og ofnæmisfélag Íslands Flokkar |
Póstlisti AO
Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO