Tilkynningar
Hlaupanámskeið
Tíu vikna hlaupanámskeið sem fer fram í lokuðum hóp á Facebook undir leiðsögn reyndra þjálfara. Námskeiðið er fyrir byrjendur og þá sem eru að hefja aftur hlaup eftir hlé. Skráningu á námskeiðið sem hefst 5. september 2022 er hafin. Skráðir þátttakendur fá tölvupóst frá SÍBS með boði í Facebookhóp nokkrum dögum fyrir upphaf námskeiðs athugið að sá póstur getur lent í "ruslinu". Ef engin póstur berst hafið samband This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. Um námskeiðið
Á námskeiðinu er boðið upp á faglega hópfræðslu um æfingar og önnur hlaupatengd málefni auk hvatningar og aðhalds. Fræðslan fer fram í gegnum myndbönd, með stöðufærslum á síðu hópsins og á smærri og stærri fjarfundum með þjálfurum.
Unnið er út frá einfaldri æfingaáætlun sem gerir ráð fyrir að hlaupið sé 3 x í viku (hægt er að velja á milli erfiðleikastiga). Álag æfinga eykst hægt og rólega í takt við getu hvers og eins.
Hlaupaæfingar eru á ábyrgð þátttakenda sjálfra, þar sem hver og einn hleypur á sínum hraða.
Markmiðið er að þátttakendur byggi upp þol til að geta hlaupið í 30 mínútur án hvíldar og finni fyrir jákvæðum áhrifum hreyfingar á andlegt- og líkamlegt form. Stöðumat verður lagt fyrir, bæði fyrir og eftir námskeiðið. Annars vegar í formi valkvæðrar spurningakönnunar, um líkamlega, andlega og félagslega þætti heilsu, auk þess sem þátttakendur finna þoltölu sína.
Skráðir þátttakendur fá tölvupóst frá SÍBS með boði í Facebook hóp námskeiðs.
Umgjörð þjálfunar á Facebook
Markhópur
Áherslur á námskeiðinu miðast við byrjendur eða þá sem eru að hefja hlaup eftir hlé.
Þátttakendur verða að hafa Facebookaðgang.
Þeir sem vilja nýta sér smærri fjarfundina með þjálfurunum þurfa að geta nýtt sér forritið Zoom.
Skráning
Skráning á næsta námskeið er hafin.
Að lokinni skráningu fá þátttakendur tölvupóst með nánari upplýsingum um námskeiðið og boði í Facebook hópinn.
Þjálfarar
Fríða Rún Þórðardóttir
Ingunn Guðbrandsdóttir
Annað
Ef þú svara einhverri spurningu játandi hér á eftir, ráðfærðu þig við lækni áður en þú kemur á námskeiðið.
Næsta námskeið
Stefnt er að því að halda annað námskeið í upphafi 2023.
Viltu fá tölvupóst þegar næsta námskeið er komið á dagskrá? Hér getur þú skráð þig á tölvupóstlista fyrir áhugasama.
|
Póstlisti AO
Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO