Tilkynningar
Hvatningarverðlaununum ÖBÍ
Reykjavík 7. Júní 2018
Bréf þetta er sent á formenn og framkvæmdastjóra aðildarfélaga ÖBÍ og annarra félaga og félagasamtaka sem málið varðar en tilefnið er að minna á Hvatningarverðlaun ÖBÍ 2018 sem afhent verða á Alþjóðadegi fatlaðra 3. desember n.k. sjá á eftirfarandi slóð. http://www.un.org/en/events/disabilitiesday/.
Óskað er eftir tilnefningum frá ykkur í eftirfarandi flokka fyrir 15 september 2018. Verðlaunaflokkarnir eru fjórir. Flokkur: Einstaklinga Fyrirtækja og stofnana Umfjöllunar og kynninga Aðildarfélaga ÖBÍ
Nánar um verðlaunin: Verðlaunin eru veitt þeim sem þykja hafa skarað fram úr og endurspeglað nútímalegar áherslur um jafnrétti, sjálfstætt líf og þátttöku fatlaðra í samfélaginu og með því stuðlað að einu samfélagi fyrir alla. Sjálfsagt er að tilnefna sömu aðila og áður hafa verið tilnefndir ef vitað er að þeir séu vel að verðlaununum komnir.
Vinsamlegast sendið tilnefningar rafrænt á eyðublaði sem finna má á heimasíðu ÖBÍ á slóðinni: https://www.obi.is/is/um-obi/hvatningarverdlaun-obi/hvatningarverdlaun-eydublad
Einnig má prenta eyðublaðið út og senda í hefðbundnum pósti til Kristínar M. Bjarnadóttur starfsmanns nefndarinnar á skrifstofu ÖBÍ, Sigtúni 42, 105 Reykjavík.
Félög og félagasamtök eru hvött til að vekja athygli félagsmanna sinna og velunnara á verðlaununum og leita til þeirra um tilnefningar, s.s. með útsendingu fjölpósts og tengingu ofangreindrar slóðar inn á heimasíðu félagsins eða á facebook hóp. Það er einlæg von okkar að við öll, aðildarfélögin og ÖBÍ hjálpist að við að gera daginn sem glæsilegastan.
Undirbúningsnefndina skipa: Elín Hoe Hinriksdóttir, ADHD samtökin Fríða Rún Þórðardóttir, Astma og ofnæmisfélag Íslands Helga Magnúsdóttir, Sjálfsbjörg lsh Margrét Haraldsdóttir, Félag nýrnasjúkra Karl Þorsteinsson, Ás styrktarfélag. Valur Höskuldsson, MND félagið á Íslandi Vignir Ljósálfur Jónsson, HIV-Ísland
Leggjumst öll á eitt og vekjum mikla og jákvæða athygli á deginum. Með kveðju, Fríða Rún Þórðardóttir Formaður undirbúningsnefndar Hvatningarverðlauna ÖBÍ |
Póstlisti AO
Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO