Tilkynningar
Leitum að einstaklingi sem er tilbúin(n) að koma fram í myndÁgæti félagsmaður Astma- og ofnæmisfélag Íslands er þátttakandi í sameiginlegu verkefni nokkurra sjúklingasamtaka og Krabbameinsfélags Íslands við gerð fræðslumyndar um skaðsemi reykinga. Félagið er að leita að einstaklingi sem er tilbúin(n) að koma fram í myndinni og segja frá sinni reynslu er snýr að reykingum og astma. Ef þú hefur áhuga eða vilt fá nánari upplýsingar vinsamlegast hafðu samband Pál Kristinn Pálsson kvikmyndagerðarmann í síma 690-8288 eða með tölvupósti á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir föstudaginn 18. mars nk. Farið verður með allar fyrirspurnir sem trúnaðarmál Fyrir hönd AO Formaður
HVERNIG Á AÐ MATREIÐA OFNÆMISFÆÐI Á ÖRUGGAN HÁTT?
Námskeið í Menntaskólanum í Kópavogi Námskeið um eldun ofnæmisfæðis á vegum Astma- og ofnæmisfélags Íslands (AO) 12. og 13. apríl 2016. Markmiðin Meginmarkmiðið með námskeiðinu er að bjóða upp á faglega fræðslu um fæðuofnæmi, alvarleika þess og hvernig tryggja megi góða og holla næringu. Það getur verið flókið að tryggja öruggt fæði og umhverfi fyrir einstakling með fæðuofnæmi. Ljóst er að næringarefni geta orðið af skornum skammti þegar fæðuofnæmi er til staðar og felst fræðslan m.a. í því hvaða fæðutegundir geta komið í staðinn fyrir mjöl, korn, mjólk egg, fisk, hnetur o.fl. til að fullnægja orku- og næringarlegum þörfum og skapa fjölbreytni í fæðu barna.
Málþing: Nýjar reglur um velferð gæludýra
Ókeypis námskeið um framkomu, framsögn og fundarstjórnFélagsráð SÍBS auglýsa námskeið í SÍBS-húsinu Síðumúla 6 sem hófst á mánudaginn var og heldur áfram næstu tvo mánudaga. Námskeiðið er haldið af félögum úr POWERtalk á Íslandi og efnið er:
Staður:SÍBS-húsið, Síðumúla 6 2.h. (lyfta), 108 Reykjavík. Stund:mánudagarnir 8., 15. og 22. febrúar kl. 17:15.
Þátttaka er ókeypis og engin skráning nauðsynleg – bara mæta!
Þetta eru góð námskeið fyrir alla þá sem starfa í stjórnum, nefndum og ráðum. Vonandi sjáum við sem flesta nýta sér þetta. Félagsráð SÍBS.
Bæklingur um AstmiGefin hefur verið út bæklingur um astmi og er það samvinnuverkefni Astma og ofæmisfélags Íslands og Glaxo Smith Kline. Bæklingnum verður dreift á heilsugæslustöðvar og í læknastofur auk þess sem hægt verður að nálgast hann á skrifstofu Astma- og ofnæmisfélags Íslands í Síðumúla 6 |
Póstlisti AO
Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO