Tilkynningar
Námskeið í Menntaskólanum í Kópavogi 27. og 28 febrúar.MATREIÐA OFNÆMISFÆÐI Á ÖRUGGAN HÁTT?Astma- og ofnæmisfélag Íslands (AO) í samvinnu við Iðuna heldur sitt vinsæla „námskeið um eldun ofnæmisfæðis“ dagana 27. og 28. Febrúar í Menntaskólanum í Kópavogi. Bóklegi hlutinn verður haldinn þriðjudaginn 27. febrúar kl. 13:30 til 16:00 og verklegi hlutinn 28. febrúar kl. 13:30 til 16.00. Námskeiðsgjald er 15.000 kr og er innifalið hráefnisgjald og hressing innifalin.
Innköllun á glútenlausri vöru „Trafo Tortilla Chips Chili“Fréttatilkynning fra matvælaéftirliti Héilbrigðiséftirlits Réykjavíkur Efni: Innköllun á glútenlausri vöru „Trafo Tortilla Chips Chili“ vegna þess að hún inniheldur glúten.
Hvernig líst þér á að leyfa eigi gæludýr í strætó ?
Ágæti félagsmaður Umræður um það hvort að leyfa eigi gæludýr í Strætó hafa farið hátt að undanförnu. Sitt sýnist hverjum en margir hafa áhuga á að vita skoðun fólks á þessari áætlan Strætó sem AO með fulltingi ÖBÍ hefur barist gegn með engum árangri.
Inni á Bylgjan.is er könnun í gangi og hvetjum við ykkur ágætu félagsmenn til að taka þátthttp://bylgjan.is/ í þessari könnun til að okkar sjónarmið komist einnig að og þau verði rædd jafnt og sjónarmið þeirra sem vilja að gæludýr geti ferðast með Strætó til jafns við mannfólkið.
Innköllun á glútenlausri vöru „Natural corn chips“ vegna þess að hún inniheldur glúten.Fréttatilkynning fra matvælaéftirliti Héilbrigðiséftirlits Réykjavíkur, nr. 3/2018.
Handbók fyrir leikskólaeldhúsKomin er út á vegum Embættis landlæknis endurskoðuð Handbók fyrir leikskólaeldhús sem tekur mið af nýlegum ráðleggingum um mataræði. Handbókin er með hagnýtar ábendingar fyrir starfsfólk leikskóla um hollustu og samsetningu fæðunnar, matseðlagerð, fæðuofnæmi og fæðuóþol, matvendni, hreinlæti, innkaup og matarsóun svo eitthvað sé nefnt. Auk þessa er í henni tillaga að sex vikna matseðli ásamt nokkrum uppskriftum. Allir leikskólar á landinu munu fá eintak sent til sín nú í janúar þeim að kostnaðarlausu. Flokkar |
Póstlisti AO
Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO