Tilkynningar
Handbók fyrir leikskólaeldhús
Komin er út á vegum Embættis landlæknis endurskoðuð Handbók fyrir leikskólaeldhús sem tekur mið af nýlegum ráðleggingum um mataræði. Handbókin er með hagnýtar ábendingar fyrir starfsfólk leikskóla um hollustu og samsetningu fæðunnar, matseðlagerð, fæðuofnæmi og fæðuóþol, matvendni, hreinlæti, innkaup og matarsóun svo eitthvað sé nefnt. Auk þessa er í henni tillaga að sex vikna matseðli ásamt nokkrum uppskriftum. Allir leikskólar á landinu munu fá eintak sent til sín nú í janúar þeim að kostnaðarlausu. |
Póstlisti AO
Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO