Tilkynningar
Samstöðufundur við Alþingi 7. desember 2016 kl. 13
ÖBÍ boðar til samstöðufundar við alþingishúsið við upphaf þingfundar miðvikudaginn 7. desember 2016. Þar verða þingmönnum afhent skrín með óskum frá málefnahópum ÖBÍ vegna fjárlagagerðar fyrir árið 2017. Þar verður meðal annars vikið að óskum um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, aðgang fatlaðs fólks að námi, afnám „krónu á móti krónu“ skerðingar, virkt eftirlit með aðgengi að mannvirkjum og að heilbrigðisþjónusta verði endurgjaldslaus. Þingmönnum verða afhent óskaskrínin við upphaf þingfundar sem hefst kl. 13:30. Um opinn viðburð er að ræða og öllum velkomið að mæta og taka þátt.
|
Póstlisti AO
Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO