23. Maí 2016
- Details
Kæri AO félagi og aðrir viðtakendur
Astma- og ofnæmisfélag Íslands (AO) er skráð sem eitt af hátt í 100 góðgerðarfélögum í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka sem fram fer í þrítugasta og þriðja sinn laugardaginn 20. ágúst næstkomandi. Í gegnum tíðina hafa félagar í AO og aðstandendur einstaklinga með astma og ofnæmi hlaupið til góðs og safnað verulegum fjárhæðum sem hafa komið sér vel í starfi félagsins. Þessir aðilar eru þó ekki einir í liðinu okkar því þeir hafa fengið hvatningu og áheit frá öðrum félögum sem hafa mætt við hlaupaleiðina og hvatt hlauparana áfram. Þannig leggja margir sitt lóð á vogarskálina.
Ef þú vilt hlaupa til góðs og safna áheitum fyrir Astma- og ofnæmisfélag Íslands, félagið okkar, getur þú skráð þig til leiks á www.marathon.is eða http://www.hlaupastyrkur.is/
Ef þú vilt taka þátt með því að heita á einhvern af okkar frábæru hlaupurum sem leggja félaginu okkar lið getur þú farið inn á http://www.hlaupastyrkur.is/einstaklingar/ og valið hlaupagarp.
Við hjá AO leggjum mikið upp úr því að tala máli þeirra sem þjást af astma og ofnæmi. Undanfarið höfum við lagt þunga áherslu á málefni er snúa að fæðuofnæmi barna í leik- og grunnskólum með námskeiðum fyrir starfsfólk eldhúsa og virkum samskiptum við Reykjavíkurborg vegna gátlista er snúa að móttöku barna með ofnæmi. Málefni þeirra sem eru með hnetuofæmi eru ofarlega á dagskrá stjórnar um næstu verkefni.
Við hvetjum einnig einstaklinga til að hreyfa sig og huga að heilsunni á þann máta. Það væri gaman að heyra í þeim sem að ætla að hlaupa fyrir okkur í ár, vinsamlegast sendu póst á
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
">
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
og við svörum um hæl.
Með bestu kveðjum,
Stjórn Astma- og ofnæmisfélags Íslands