Tilkynningar

DÁSAMLEGUR MATUR SEM ALLIR GETA NOTIÐ Hin breska Alice Sherwood er...
Opnunartími skrifstofu
Gerast félagi
ao vidbragsaaetlun hnappur

Skráning á póstlista

Minningarkort
Tímarit
Fræðslumyndbönd
Medic Alert
SÍBS

 

 

 ht logo big neg1
19. Okt 2015

HVERNIG Á AÐ MATREIÐA OFNÆMISFÆÐI Á ÖRUGGAN HÁTT? Námskeið á Dalvík

Heiti námskeiðs:

 

HVERNIG Á AÐ MATREIÐA OFNÆMISFÆÐI Á ÖRUGGAN HÁTT?

Kynning:

dalvikurskoli.googleFæðuofnæmi eru síður en svo á undanhaldi þó svo að sumir séu sjálfgreindir eða að prófa sig áfram með að sleppa ýmsum fæðutegundum í sínu daglega mataræði í leit að betri líðan. Hvort sem fæðuofnæmið er læknisfræðilega greint eða ekki eiga allir rétt á að fá það ofnæmisfæði sem þeir telja sig þarfnast. Það kemur síðan í hlut þeirra sem annast matargerð víðs vegar í samfélaginu að matreiða og bera fram öruggan, vel samsettan og girnilegan mat. Sumir sem hafa þessu hlutverki að gegna finna ekki fyrir nægjanlegu öryggi og skortir jafnvel á þekkingu í tengslum við samsetningu á matseðlum og matreiðslu á ofnæmisfæði. Það má draga úr slíku óöryggi með markvissri fræðslu og leiðsögn þar sem leiðbeinendur þessa námskeiðs mæta þátttakendum á miðri leið og bera virðingu fyrir þeirri reynslu sem þeir búa yfir og hafa til að miðla á móti.   

Markmið:

Megin markmiðið með námskeiðinu er að bjóða upp á faglega fræðslu um fæðuofnæmi, alvarleika þeirra og hvernig tryggja megi góða og holla næringu. Lífsgæði þessara einstaklinga eru oft verulega skert og því verður fjallað um það hvernig tryggja megi félagslega þátttöku þessara einstaklinga í skóla-, frístunda- og félagsstarfi. Að lokum verður boðið upp á verklega kennslu í matargerð út frá matreiðslu á ofnæmisfæði og síðast en ekki síst, skapaður grundvöllur fyrir umræður og skoðanaskipti.

Það vantar aðgengilega fræðslu á þessu sviði og sér í lagi frá hendi þeirra sem hafa reynsluna báðum megin borðsins og hafa skilning á því hversu flókið það getur verið að tryggja öruggt fæði og umhverfi fyrir einstakling með fæðuofnæmi og önnur ofnæmi.  

Markhópurinn:

food allergyMegin markópurinn eru þeir sem starfa í eldhúsum leikskóla og skóla, en einnig í skólamötuneytum, eldhúsum sjúkrahúsa og mötuneytum fyrirtækjum. Einnig starfsmenn í fyrirtækjum í matvælaframleiðslu og veitingageiranum.  

Fyrri hlutinn af námskeiðinu gæti hentað vel stjórnendum og öðrum starfsmönnum í leik- og grunnskólum svo og frístundastarfi og er hægt að óska eftir að sitja aðeins fyrri hlutann. Foreldrar og aðrir aðstandendur eru einnig velkomnir á námskeiðið.  

Kennslan fer fram í Dalvíkurskóla

   Laugardaginn 14. nóvember

                                                             Bóklegt      kl. 10:15 – 13:00

Verklegt  kl. 13:30 – 17:30

Skráning og námskeiðsgjald:

Skráning og fyrirspurnir sendist á skrifstofu Astma- og Ofnæmisfélags Íslands This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.  Námskeiðsgjald: 23.000 kr

 

Það er mikilvægt að opna á umræður og auka meðvitund í þjóðfélaginu öllu fyrir því hversu flókið og alvarlegt fæðuofnæmi getur verið. Það þarf að upplýsa um það hvað þeir sem stríða við fæðuofnæmi og aðstandendur þeirra þurfa að takast á við í daglegu lífi, hluti sem okkur hinum finnast sjálfsagðir. Það að stuðla að öflugri fræðslu um alvarleika fæðuofnæmis og veita faglega ráðgjöf stuðlar að bættum hag barna, unglinga og fullorðinna sem eru með fæðuofnæmi. Það eykur  jöfnuð í samfélaginu og stuðlar að því að allir hafi aðgengi að hollum og næringarríkum mat sem er laus við þá ofnæmisvalda sem hver einstaklingur þarf að forðast.  

Umsjón:

Fríða Rún Þórðardóttir, næringarráðgjafi & formaður Astma- & Ofnæmisfélags Íslands (AO)

Selma Árnadóttir móðir ofnæmisbarns & stjórnarmaður í AO

Skipulag námskeiðsins:  

Bóklegt kl. 10:15 – 11:30

*Velkomin & kynning á AO, námskeiðinu, markmiðum þess & Kræsingum.  

   Fríða Rún Þórðardóttir

*Næringartengd fræðsla um fæðuofnæmi.

Almenn fræðsla um fæðuofnæmi og hvaða næringarefni geta orðið af skornum skammti þegar fæðuofnæmi er til staðar. Hvaða fæðutegundir geta komið í staðinn fyrir mjöl, korn, mjólk, egg, fisk, hnetur o.f.l. til að fullnægja næringarlegum þörfum og skapa fjölbreytni í fæði barna, unglinga og fullorðinna sem þurfa að sleppa þessum fæðutegundum vegna fæðuofnæmis.    Fríða Rún Þórðardóttir  

Hlé: 15 mínútur

Bóklegt 11:45– 13:00

*Félagslegir þættir og viðmót samfélagsins. Hvernig tökum við á móti barni með fæðuofnæmi og foreldrum þess fyrstu dagana. Verkferlar og aðferðir kynntar til að auðvelda móttöku ofnæmis- barna, tryggja öryggi þegar að kemur að veislum og öðrum matartengdum viðburðum. Umræður um hnetulausa starfsstaði. Félagslegar aðstæður hjá fullorðnum einstaklingi með fæðuofnæmi.

Selma Árnadóttir  

Hlé: 30 mínútur

Verklegt 13:30 – 17:30

*Eldað fyrir ofnæmissjúka. heitar máltíðir, meðlæti & eftirréttir. Bakstur. Hvernig má forðast smit. 

Margrét Sigurbjörnsdóttir & Steinunn Anna Kjartansdóttir  

 


Póstlisti AO

Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO