Tilkynningar
Nýtt afmælisblað Astma- og ofnæmisfélags Íslands
Í ár fagnaði Astma- og ofnæmisfélagið 40 ára afmæli og var af því tilefni gefið út veglegt afmælisblað. Blaðið er tímamóta framtak þar sem helsta vinnan er á höndum ritstjórnar, eingöngu skipuð stjórnarmönnum. Í blaðinu má meðal annars finna ágrip á 40 ára sögu félagsins, grein móður ofnæmisveiks barns, viðtal við hárgreiðslukonu sem vinnur aðeins með "grænar" hársnyrtivörur, grein um krossofnæmi og margt fleira upplýsandi og skemmtilegt. Astma- og ofnæmisfélag Íslands gefur út tvö blöð á ári og eru allar ábendingar um spennandi efni vel þegnar. Sjá allt blaðið hér |
Póstlisti AO
Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO